Home Fréttir Í fréttum Rubix kaupir Vökvatengi

Rubix kaupir Vökvatengi

145
0

Rubix Ísland ehf. hefur gengið frá kaupum á verslun og eignum Vökvatengi ehf. í Reykjanesbæ.

<>

Rubix Ísland ehf. hefur gengið frá kaupum á verslun og eignum Vökvatengi ehf. í Reykjanesbæ. Vökvatengi hefur sérhæft sig sem sölu- og þjónustuaðili á vökva- og loftbúnaði, ásamt margskonar rekstrarvörum fyrir fyrirtæki á Reykjanesinu.

Vökvatengi var stofnað árið 1985 og er staðsett í Reykjanesbæ. Stofnendur fyrirtækisins, Skúli S. Ásgeirsson og Elín Halldóra Hermannsdóttir, segjast munu minnka við sig en munu aftur á móti reka verkstæðið áfram.

„Þessi kaup styðja við metnað okkar að bjóða vörur og þjónustu okkar til allra svæða á Íslandi. Ég er ánægður með að bjóða starfsmenn, viðskiptavini og birgja Vökvatengi velkomna í Rubix fjölskylduna og hlakka til að vinna með þeim til að byggja enn frekar á velgengni fyrirtækjanna. Saman munum við geta skapað aukin verðmæti fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila á Íslandi,“ segir Jóhann Benediktsson, framkvæmdastjóri Rubix Ísland.

Í tilkynningu segir að Rubix Ísland muni njóta góðs af stækkun markaðssvæðis og sérfræðiþekkingu starfsmanna Vökvatengis. Þegar líður á haustið mun verslun Vökvatengis breytast og vöruframboðið aukast með vörum frá Rubix og Verkfærasölunni.

„Ég er ánægður með að Vökvatengi hefur fundið frábært nýtt heimili sem hluti af Rubix og ég er spenntur fyrir þeim tækifærum sem það hefur í för með sér fyrir okkar góðu og tryggu starfsmenn og viðskiptavini okkar, sem munu nú hafa aðgang að enn breiðari vöru- og þjónustuframboði,“ segir Skúli S. Ásgeirsson, stofnandi Vökvatengis.

Heimild: Vb.is