Home Fréttir Í fréttum 02.08.2023 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2023-2024 Útboð II

02.08.2023 Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2023-2024 Útboð II

95
0
Mynd: Reykjavík.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Vetrarþjónusta gatna í Reykjavík 2023-2024 Útboð II, útboð nr. 15871

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík. Um er að ræða götur austan Elliðaáa, í Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi, Grafarholti-Úlfarsárdal, Álfsnesi og Esjumelum.

Helstu magntölur eru:

  • Þjónustuflokkur 1:     Götulengd: 101 km                Ruðningslengd: 190 km
  • Þjónustuflokkur 2:     Götulengd: 37 km                  Ruðningslengd: 74 km
  • Þjónustuflokkur 3:     Götulengd: 115 km                Ruðningslengd: 231 km

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 16:00 þann 29. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 11:00 þann 2. ágúst 2023.