Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst í þessari viku og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Nýja flughlaðið er 32 þúsund fermetrar.
Smíði viðbyggingar við flugstöðina er einnig í fullum gangi og miðar vel áfram. Viðbyggingin verður 1.100 fermetra. Heildarstærð flugstöðvarinnar að verki loknu verður 2.700 fermetrar.
Hörður Geirsson var á ferð á flugvallarsvæðinu i gær og hann tók meðfylgjandi myndir.
Heimild: Vikubladid.is