Home Fréttir Í fréttum 03.07.2023 Aðalskoðun leiksvæða við grunn- og leikskóla Reykjavíkurborgar 2023

03.07.2023 Aðalskoðun leiksvæða við grunn- og leikskóla Reykjavíkurborgar 2023

64
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Aðalskoðun leiksvæða við grunn- og leikskóla Reykjavíkurborgar 2023, útboð nr. 15864

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í aðalskoðun á leiksvæðum við skóla og leikskóla í Reykjavík í samræmi við reglugerð nr. 942/2002. Helstu magntölur: Grunnskólalóðir: 40 stk. Leikskólalóðir: 88 stk. Áætlaður verktími vegna úttekta er 10. júlí – 15. október 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 20. júní 2023.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 3. júlí 2023.

Heimild: Reykjavik.is