Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Isavia semur um upp­byggingu hleðslu­stöðva í Kefla­vík

Isavia semur um upp­byggingu hleðslu­stöðva í Kefla­vík

135
0
Báðir aðilar lýsa yfir ánægju með samninginn um rafhleðslustöðvar en segja að um langtímasamning sé að ræða. ISAVIA

Full­trúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um upp­setningu á fjölda hleðslu­stöðva fyrir raf­bíla á Kefla­víkur­flug­velli. Þetta kemur fram í til­kynningu þar sem segir að um lang­tíma verk­efni sé að ræða.

<>

Segir þar að nýjar hleðslu­stöðvar verði byggðar fyrir farar­tæki Isavia og annarrar rekstrar­aðila á vellinum og einnig fyrir starfs­fólk fyrir­tækjanna en auk þess verða eldri hleðslu­stöðvar upp­færðar eða þeim skipt út. Nýju stöðvarnar verða allt að 100 AC hleðslu­stöðvar og allt að 10 DC hrað­hleðslu­stöðvar.

Sam­kvæmt samningnum sér HS Orka um upp­setningu og við­hald hleðslu­stöðvanna sem Isavia leigir af fé­laginu. Þá heldur HS Orka einnig utan um notkun hleðslu­stöðvanna og hvernig hún skiptist milli aðila. Samningurinn er gerður á grund­velli verð­fyrir­spurnar sem gerð var á út­boðsvef Isavia í byrjun þessa árs.

„Við hjá Isavia erum afar á­nægð að hafa náð þessu sam­komu­lagi við HS Orku,“ er haft eftir Gunnari Inga Haf­steins­syni, deildar­stjóra bíla­stæða­þjónustu hjá Isavia.

„Um lang­tíma­fram­kvæmd er að ræða og þegar henni er lokið verðum við komin með nýjar hleðslu­stöðvar fyrir farar­tæki starfs­fólks og fyrir­tækja á flug­vallar­svæðinu. Þetta hjálpar okkur að ná mark­miði okkar um kol­efna­leysi í eigin rekstri á Kefla­víkur­flug­velli fyrir árið 2030.“

Hleðslustöðvar verða víða á flugvellinum að verki loknu.
ISAVIA

Uppfæra hleðslustöðvar á P2 skammtímastæðum fyrst
Gunnar Ingi segir að fyrsta verk­efnið sam­kvæmt samningnum verði að upp­færa hrað­hleðslu­stöðvar sem fyrir séu fyrir far­þega á P2 skamm­tíma­stæðum flug­vallarins komu megin. Því næst verði skipt út þeim hleðslu­stöðvum á svæðinu sem þarfnist upp­færslu. Síðan verði ráðist í upp­setningu nýrra stöðva fyrir starfs­fólk og fyrir­tæki. Fram­tíðar­skrefið sé svo að bæta raf­hleðslu fyrir far­þega.

„Við hjá HS Orku erum mjög spennt fyrir þessu sam­starfi með Isavia,” segir Jóhann Snorri Sigur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þróurnar hjá HS Orku. „Að fá tæki­færi til að taka þátt í þeirri upp­byggingu sem á sér stað hjá Isavia og um leið bjóða lausnir sem auka að­gengi að hleðslu­stöðvum er mikil­vægt verk­efni. Isavia er að gera gang­skör í hleðslu­málum hjá sér og við vonum að notkun raf­bíla muni enn aukast hjá starfs­mönnum og rekstrar­aðilum í fram­haldi af þessu.“

Heimild: Visir.is