Íbúar í Seljahverfi í Reykjavík eru ósáttir við grjóthaug sem safnast hefur upp á horni Álfabakka og Árskóga í hverfinu vegna framkvæmda. Formaður íbúaráðs bíður svara frá umhverfis-og skipulagsráði vegna haugsins en samkvæmt svörum borgarfulltrúa er um að ræða uppgröft sem nýta á í nýjan vetrargarð í Seljahverfi.
„Þarna er komið heilt fjall af efni sem er jafnhátt og nýbyggð íbúðablokk,“ skrifar íbúi sem vekur athygli á haugnum í grennd við ÍR heimilið í Breiðholti á íbúahópi Seljahverfis og Bakkana. Þar standa nú yfir framkvæmdir, meðal annars við byggingu nýrrar verslunar Garðheima auk nýrra hjólastíga.
Sara Björg Sigurðardóttir, formaður íbúaráðs Breiðholts, segir í samtali við Vísi að hún hafi óskað eftir úttekt frá umhverfis-og skipulagssviði borgarinnar. Sviðið sendi eftirlitsmenn á staðinn í gær og á Sara enn eftir að fá þær niðurstöður í hendurnar.
Hún segist skilja vel óánægju íbúa vegna haugsins en íbúar hafa meðal annars nefnt að töluvert sandfok sé af völdum hans. Að öðru leyti segist hún ekki vilja tjá sig um hauginn þar til frekar niðurstöður umhverfissviðs liggja fyrir.
ÍR-ingar kannast ekki við uppgröftinn
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, upplýsir íbúa á Facebook hópi Seljahverfis um að hann hafi spurst fyrir um framkvæmdirnar.
„Efnishaugurinn er uppgröftur úr grunni fjölnotahúss ÍR. Ætlunin er að nota uppgröftinn sem uppfyllingu í vetrargarð, sem fyrirhugað er að stækka í Efra Breiðholti. Vegna tafa við gatnagerð, sem er á forræði Vegagerðarinnar, hefur orðið bið á því að efninu úr haugnum sé ekið af svæðinu,“ segir í svörum Kjartans.
„Eitthvað úr efnishaugnum verður notað í áframhaldandi landmótun á ÍR-svæðinu og þá verður lóðin í kringum fjölnotahúsið jafnframt kláruð.“
Ólafur Gylfason, meðstjórnandi ÍR, segir í svörum til Vísis að þau svör sem Kjartan hafi fengið séu ekki rétt. Uppgröfturinn sé ekki úr grunni húsana á ÍR-svæðinu.
„Það er líka komið bílastæði fyrir trukka við hliðina á þessum haug sem er með ólíkindum enda alls ekki inni á neinu deiliskipulagi frekar en grjóthaugurinn,“ skrifar Ólafur.
„Það hefur ekkert gengið að fá svör hjá Reykjavíkurborg um á hvers vegum þessi tvö tilvik eru né hvort þetta sé hreinilega leyfilegt.“
Fréttin var uppfærð með svörum Ólafs Gylfasonar, meðstjórnanda í stjórn ÍR.
Heimild: Visir.is