Home Fréttir Í fréttum Starfsstöð RARIK á Selfossi flytur á Larsenstræti 4

Starfsstöð RARIK á Selfossi flytur á Larsenstræti 4

99
0
Ný starfsstöð RARIK að Larsenstræti 4 á Selfossi. Mynd: Rarik.is

Í dag, föstudaginn 23. júní, flytur RARIK starfsstöð sína á Selfossi í nýtt húsnæði við Larsenstræti 4 og hefur fulla starfsemi þar mánudaginn 26. júní.

<>

Framkvæmdir við nýja starfsstöð hófust í janúar 2021 og felur þessi nýja aðstaða í sér bætt vinnuskilyrði starfsfólks og hagræði fyrir reksturinn sem framvegis verður á einum stað í stað tveggja áður.

Ný starfsstöð RARIK að Larsenstræti 4 á Selfossi. Mynd: Rarik.is

Þess er vænst að sameinuð starfsstöð skapi gott nútímalegt vinnuumhverfi og auðveldi starfsfólki að þjóna viðskiptavinum fyrirtækisins enn betur í framtíðinni.

Heimild: Rarik.is