Home Fréttir Í fréttum Mal­bika nýtt flug­hlað á Akur­eyrar­flug­velli

Mal­bika nýtt flug­hlað á Akur­eyrar­flug­velli

107
0
Nýja flughlaðið og nýja flugstöðvarbyggingin sjást til hægri við núverandi flugstöð. EGILL AÐALSTEINSSON

Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst núna síðdegis og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Flugvallarstjórinn segir að það muni gjörbreyta aðstöðunni.

<>

Frumvarp um varaflugvallagjald varð að lögum frá Alþingi fyrr í mánuðinum en það mun ekki síst gagnast völlum eins og þeim á Akureyri. Þingmaðurinn sem fór fyrir starfshópnum sem lagði til gjaldið fagnar.

„Varaflugvallagjaldið breytir gríðarlega miklu í uppbyggingu á varaflugvallakerfinu. Þarna er sérstaklega verið að eiga við alþjóðaflugvellina,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður og áður flugumferðarstjóri á Akureyri, í fréttum Stöðvar 2.

Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður starfaði áður sem flugumferðarstjóri á Akureyrarflugvelli. Fyrir aftan sést hvar verið er að undirbúa nýja flughlaðið undir malbikun.
EGILL AÐALSTEINSSON

Framkvæmdir þær sem núna sjást á vellinum, bæði við nýja flugstöð og flughlað, fóru þó af stað sem fjárfestingarátak vegna covid-faraldursins.

„Flughlaðið er bara lítið,“ segir Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri Akureyrarflugvallar, um leið og hún bendir á þrengslin á stæðinu framan við flugstöðina.

Hjördís Þórhallsdóttir, flugvallarstjóri Akureyrarflugvallar.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Þannig að það mun gjörbreyta aðstöðunni á Akureyrarflugvelli að fá nýtt flughlað,“ segir hún.

Nýja flughlaðið er 32 þúsund fermetrar og mun malbikun standa yfir næstu þrjár vikur, samkvæmt upplýsingum frá malbiksverktakanum Colas Ísland, en leggja þarf þrjú lög malbiks.

Stærri þotur með auknu millilandaflugi kalla á meira rými.

Frá vinnu við nýja flughlaðið.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Þetta bara vex og vex. Byrjaði í raun að vaxa hratt árið 2017 þegar við byrjuðum að fá meira millilandaflug,“ segir flugvallarstjórinn en framundan er mikilvæg breyting þegar breska lággjaldaflugfélagið Easy Jet hefur áætlunarflug til Akureyrar.

Njáll Trausti segir þó mikilvægast að hægt verði að taka við fleiri þotum samtímis þegar Keflavíkurflugvöllur lokast á annatíma. Stærra flughlað á Akureyri auki öryggi alþjóðaflugsins.

Séð yfir Akureyrarflugvöll. Flugbrautin er 2.400 metra löng.
EGILL AÐALSTEINSSON

„Kannski að koma 25-30 vélar á sama tíma inn. Þá er gríðarlega mikilvægt að hafa varaflugvelli annars staðar ef það þarf að hörfa og lenda annars staðar vegna einhvers sem kemur upp; veður eða einhver atvik gerast í Keflavík, lokast brautir út af einhverju. Þá er þetta gríðarlega mikilvægt.

Þetta er flugöryggismál. Þetta sparar líka eldsneyti. Þetta er umhverfismál,“ segir þingmaðurinn.

Varaflugvallagjaldið mun einnig nýtast Reykjavík og Egilsstöðum.

„Það fjárfestingarverkefni varðandi öryggismál í fluginu sem ætti að fara í næst það væri Egilsstaðaflugvöllur og hefja uppbyggingu þar sem allra fyrst,“ segir Njáll Trausti.

Heimild: Visir.is