Home Fréttir Í fréttum 27.06.2023 Þorlákshöfn, Suðurvararbryggja – Endurbygging stálþils 2023

27.06.2023 Þorlákshöfn, Suðurvararbryggja – Endurbygging stálþils 2023

148
0
Mynd: Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskar eftir tilboðum í verkið „Þorlákshöfn: Suðurvararbryggja – Endurbygging stálþils 2023“.

<>

Helstu verkþættir eru:

· Steypa 61 akkerisplötu.

· Reka niður 130 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800

· Bolta stagbita innan á þilið og koma 61 stögum og akkerisplötum fyrir.

· Fylla upp innan við þil.

· Steypa kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginu 12. júní 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júní 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.