Home Fréttir Í fréttum 19.06.2023 Móahverfi, A. áfangi – gatnagerð og lagnir

19.06.2023 Móahverfi, A. áfangi – gatnagerð og lagnir

249
0
Uppdráttur af hinu nýja hverfi.

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, fyrir hönd Akureyrarbæjar og Norðurorku, óskar eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir í Móahverfi, A. áfanga.

<>

Móahverfi er nýtt íbúðahverfi á Akureyri sem er staðsett suðvestan Borgarbrautar og norðvestan núverandi íbúðarbyggðar í Giljahverfi og suðvestan við Síðuhverfi. Skipulagssvæðið er um 45 ha og afmarkast svæðið af lóðarmörkum við Urðargil, Vestursíðu og Borgarsíðu í austri, framhaldi af Síðubraut í norðvestri og af 100 m hæðarlínu í suðvestri. Móahverfi er skipulagt með blöndu af fjölbýlishúsum og sérbýlishúsum.

Gildandi deiliskipulagsuppdrátt fyrir Móahverfi má nálgast á vefsíðu Skipulagsstofnunar Deiliskipulag Móahverfi

Þær götur sem tilheyra A áfanga eru Síðubraut, Langimói, Lyngmói (a-mói), Lautarmói (b-mói), Holtamói (c-mói), Höfðamói (d-mói), Heiðarmói (e-mói), Háimói (f-mói), Hagamói (g-mói), Hlíðarmói (h-mói), Hrísmói (i-mói) og Lækjarmói (u-mói) skv. gildandi deiliskipulagi.

A áfangi verksins inniheldur því u.þ.b. 3 km af götum og gangstéttum, um 2 km af göngustígum og tilheyrandi fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir. Nákvæmar magntölur verksins munu koma fram í útboðsgögnum.

Afhending útboðsgagna fyrir Móahverfið seinkar til 2. júní sökum breytinga í hönnunarferli.

Dagsetningar útboðsferlisins eru eftirfarandi:
Forauglýsing birt á evrópska efnahagssvæðinu (TED): 17. mars 2023
Útboðsgögn aðgengileg á rafrænum útboðsvef Akureyrarbæjar: 2. júní 2023
Opnun tilboða: 19. júní 2023
Upphaf framkvæmdatíma: Við töku tilboðs
Lok framkvæmdatíma: 15. október 2024

Opnun tilboða fer fram rafrænt