Home Fréttir Í fréttum 25.05.2023 Gufunes 1. áfangi – Yfirborðsfrágangur í Jöfursbási

25.05.2023 Gufunes 1. áfangi – Yfirborðsfrágangur í Jöfursbási

245
0
Mynd/Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Gufunes 1. áfangi – Yfirborðsfrágangur í Jöfursbási, útboð nr. 15824

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið felst í að ljúka yfirborðsfrágangi Jöfursbáss í Gufunesi.

Verkið innifelur lagfæringar núverandi yfirborðs undir hellulögn og malbikun, malbikun götunnar, fyllingar í gangstéttar, steinlögn á bílastæði og hellu- og steinlögn í gangstéttir og upphækkuð svæði kringum gönguþveranir, ásamt þökulögn og sáningu í fláa meðfram gangstétt. Hækkar þarf upp niðurföll, brunna og spindla og ganga frá í yfirborði. Umferðarmerki  og yfirborðsmerkingar tilheyra verkinu. Jarðvegsskipta þarf fyrir fleiri bílastæðum innst í Jöfursbási. Gera þarf tvö ný niðurföll og tengja við núverandi regnvatnslögn. Gerð ofanvatnsrásar með trjá- og runnabeði í miðsvæði götu.  Borgarlýsing götu ásamt ídráttarrörum, mæli- og tengiskáp og heimtaug fyrir hleðslustaura rafbíla.

Helstu magntölur:

Burðar og styrktarlög:           1000     m³

Malbikun:                              8100     m²

Hellu- og steinlagnir             8000     m²

Kantsteinar                              800     m

Tré og stálrammar                     46     stk.

Umferðarmerki                         45     stk.

Jarðvírar                                1300     m

Jarðstrengir                             750     m

Ídráttarrör                              2500     m

Ljósastaurar                               23     stk.

Verklok:  30. nóvember 2023.

 

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 17:00 þann 10. maí 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:30 þann 25. maí 2023.