Rangárþing ytra auglýsir útboð í framleiðslu forsteyptra eininga og reisingu burðavirkis fyrir 2.áfanga viðbyggingu Grunnskólans á Hellu
Óskað er eftir tilboðum í framleiðslu og reisingu á forsteyptum einingum í burðarvirki vegna annars áfanga stækkunar skólasvæðisins á Hellu.
Verkið felst í að forsteypa einingar og reisa sökkla, útveggi og innveggi ásamt holplötum með ásteypulagi.
Helstu magntölur eru:
Forsteyptar einingar
Undirstöður 1.170 m²
Holplötur 265mm þykkar 1.360 m²
Holplötur 320mm þykkar 1.100 m²
Bitaeiningar, C35/45 12 lm
Útveggjaeiningar, C35/45 1.445 m²
Innveggjaeiningar, C35/45 1.000 m²
Verklok eru áætluð í lok júní 2024
Útboðsgögn verða afhent frá og með 08. maí og skal senda ósk um útboðsgögn á netfangið tomas@ry.is
Tilboðum skal skila inn fyrir kl 14:00 fimmtudaginn 25. maí í lokuðu umslagi á skrifstofu Rangárþings ytra Suðurlandsvegi 1 eða á netfangið tomas@ry.is