Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir í Laugarnesskóla

Framkvæmdir í Laugarnesskóla

207
0
Mynd: Reykjavik.is

Farið verður í umfangsmikið viðhald og endurnýjun í Laugarnesskóla á næstu árum. Saga skólans er löng og tímabært að uppfæra húsakost skólans, ekki síst með tilliti til kennsluhátta framtíðarinnar.

<>

Undanfarinn vetur skólaárið 2022-2023 hafa verið umtalsverðar framkvæmdir í skólanum vegna leka- og mygluvandamála. Þær miða að því að fjarlægja rakaskemmt byggingarefni, stoppa leikaleiðir og þétta eins og kostur er.

Þeim fylgja þá ítarleg þrif og jafnan er lofthreinsitækjum komið fyrir á viðeigandi stöðum. Mótvægisaðgerðirnar eru hugsaðar til þess að tryggja áframhaldandi skólastarf meðan undirbúnar eru stærri og viðameiri framkvæmdir.

Stóru verkefni skólans lúta þá að þéttingu veðurhjúps og ytra byrði elsta hluta skólans. Samhliða þarf að uppfæra loftræstingu og endurnýja glugga. Innra byrði verður þá mikið til endurnýjað. Ytra byrði hússins nýtur friðunar og verður þétting þess unnin í góðri samvinnu með Minjastofnun.

Samhliða endurnýjun í Laugarnesskóla er verið að hugsa grunnskólamál í Laugardal og Laugarnesi heildrænt og til framtíðar en ljóst er að nemendum fjölgar í hverfinu næstu ár. Greiningarvinna er langt komin og ættu niðurstöður að liggja fyrir í lok maí 2023.

Hvað mun þetta kosta?
Frumkostnaðaráætlun er í vinnslu.

Hvar er kennt á meðan?
Húsnæði KSÍ hefur gagnast skólanum til bráðabirgða á meðan unnið hefur verið að mótvægisaðgerðum. Á meðan framkvæmdum stendur verður þó hægt að halda úti skólastarfi með tilfæringum innan skólans og á lóð hans.

Forsagan
Elsti hluti Laugarnesskóla er kominn vel á níræðisaldur og ytra byrði hans ásamt miðrými skólans í seinni byggingaráfanga er friðlýst. Greinargerð EFLU á rakaástandi og innivist skólans, sem hafa legið til grundvallar mótvægisaðgerðum, kom út í ágúst 2022.

Skýrsla verkfræðistofunnar Eflu um Laugarnesskóla 2022

Hvernig gengur?
Maí 2023
Boðin hefur verið út byggingarstjórn og eftirlit á framkvæmdum við Laugarnesskóla. Niðurstöður útboðs liggja fyrir í lok mánaðar.

Apríl 2023
Drög lögð að aðgerðum sumarsins en áfram verður hugað að mótvægisaðgerðum og fyrirbyggjandi viðhaldi.

Mars 2023
Samtal við Minjastofnun virkjað vegna friðlýsingar á skólanum.

Fundað með foreldrasamfélagi og skólaráði Laugarnesskóla.

Janúar 2023
Mótvægisaðgerðir og greiningavinna í fullum gangi. Tekin kjarnasýni úr útvegg til að fá betri mynd af ástandi steypunnar. Vinna hafin við útboð á byggingarstjórn verkefnisins.

Heimild: Reykjavik.is