F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hlíðarendi – Yfirborðsfrágangur 2023, útboð nr. 15819
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í að ganga frá yfirborði í Fálkahlíð og við Hlíðarfót milli Fálkahlíðar og
Arnarhlíðar ásamt því að ganga frá lögnum og strengjum veitufyrirtækja.
Verklok: September 2023.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 26. apríl 2023.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:30 þann 11. maí 2023.