FSRE Hefur nú gefið út nýjar Kröfur til upplýsingamiðlunar (EIR) sem taka á öllum upplýsingum og ferlum þeim tengdum á hönnunartíma. Kröfurnar verða kynntar og útskýrðar á morgunfundi þriðjudaginn 25. apríl
Undanfarin ár hefur verið ör þróun í meðhöndlun stafrænna byggingaupplýsinga í mannvirkjagerð. FSRE hefur í rúman áratug notast við BIM aðferðafræðina við hönnun stærri byggingar sem stofnunin hefur umsjón með.
Nú hefur stofnunin gefið út nýjar BIM kröfur eða Kröfur til upplýsingamiðlunar (EIR) með vísan í ISO 19650 sem taka nú á öllum upplýsingum og ferlum þeim tengdum á hönnunartíma.
Þriðjudaginn 25. apríl frá kl. 9 – 10:30 heldur FSRE morgunfund á Hilton Nordica þar sem kröfurnar verða kynntar og útskýrðar.
Hönnuðir og verktakar eru sérstaklega hvött til að mæta.
Dagskrá
- 09.00-09:15 Frumkvæði og ábyrgð
Ólafur Daníelsson, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá FSRE - 09:15- 10:15 Nýjar BIM kröfur FSRE, hagræðing með áreiðanlegri upplýsingum
Davíð Friðgeirsson, BIM leiðtogi FSRE og formaður BIM Ísland - 10:15-10:30 Spurningar úr sal
Heimild: FSRE.is