Home Fréttir Í fréttum Mos­fells­bær. Út­hlut­un lóða við Úu­götu í Mos­fells­bæ í 5. áfanga Helga­fells­hverf­is

Mos­fells­bær. Út­hlut­un lóða við Úu­götu í Mos­fells­bæ í 5. áfanga Helga­fells­hverf­is

414
0
Mynd: Mosfellsbær.is

Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar hef­ur sam­þykkt út­hlut­un­ar­skil­mála og lág­marks­verð lóða í 5. áfanga Helga­fells­hverf­is. Inn­an 5. áfanga verða fjöl­breytt­ar gerð­ir íbúða sem mynda bland­aða byggð í hlíð á móti suðri.

<>

Í þess­ari út­hlut­un er ósk­að eft­ir til­boð­um í bygg­ing­ar­rétt ann­ars veg­ar fjög­urra fjöl­býla með 12 íbúð­um hvert, alls 48 íbúð­ir, og hins veg­ar sjö rað­húsa, alls 24 íbúð­ir.

Hverri lóð verð­ur út­hlut­að til þess að­ila sem ger­ir hæst til­boð í við­kom­andi lóð, enda upp­fylli við­kom­andi að­il­ar skil­yrði um fjár­hags­legt hæfi sem til­greind eru í 3. gr. út­hlut­un­ar­reglna Mos­fells­bæj­ar.

Bæði ein­stak­ling­ar og lög­að­il­ar geta lagt fram til­boð í bygg­ing­ar­rétt lóða en hver um­sækj­andi get­ur þó að­eins lagt fram eitt til­boð í hverja lóð.

Nán­ari upp­lýs­ing­ar eins og mæli­blöð, hæð­ar­blöð, grein­ar­gerð deili­skipu­lags og upp­drætt­ir er að finna á korta­vef Mos­fells­bæj­ar.

Til­boð í lóð­ir skulu ber­ast Mos­fells­bæ fyr­ir mið­nætti þann 4. maí 2023 og verða ein­göngu mót­tek­in með ra­f­ræn­um hætti í gegn­um þjón­ustugátt sveit­ar­fé­lags­ins.

Áform­að er að síð­ari út­hlut­un lóða á svæð­inu, sem eru að mestu ein­býl­is­húsa- og par­húsa­lóð­ir, fari fram næsta haust. Sú út­hlut­un verð­ur aug­lýst­ síð­ar.

All­ar nán­ari upp­lýs­ing­ar um út­hlut­un lóð­anna er að finna á slóð­inni mos.is/lod­ir og hjá Arn­ari Jóns­syni, for­stöðu­manni þjón­ustu- og sam­skipta­deild­ar og Kristni Páls­syni skipu­lags­full­trúa í síma 525-6700.