Home Fréttir Í fréttum Mátti ekki reka raf­virkja fyrir að drekka í vinnunni

Mátti ekki reka raf­virkja fyrir að drekka í vinnunni

166
0
Mynd: GETTY IMAGES

Dómstóll á Spáni hefur dæmt vinnuveitanda rafvirkja til að bjóða honum fyrra starf sitt, ella greiða honum rúmar sjö milljónir króna. Maðurinn var rekinn fyrir að drekka ítrekað í vinnunni.

<>

Rafvirkinn hafði unnið fyrir fyrirtæki, rafvirkjaþjónustu, í 27 ár. Af einhverri ástæðu sá vinnuveitandinn tilefni til að ráða einkaspæjara til að fylgjast með manninum á vinnutíma.

Samkvæmt uppsagnarbréfi átti maðurinn að hafa drukkið margoft í vinnunni. Það skapaði töluverða hættu og þá var einnig talið óforsvaranlegt að rafvirkinn æki fyrirtækjabílnum undir áhrifum.

Skýrsla einkaspæjarans var höfð að leiðarljósi við uppsögnina, sem fylgdist með rafvirkjanum í nokkra daga í júlí árið 2021.

Brauðhleifur, fjórar dósir af San Miguel og eins lítra flaska af bjórnum Estrella. Þetta átti maðurinn að hafa keypt um hádegisbil á vinnutíma hinn 5. júlí. Rúmum tveimur vikum síðar sagðist einkaspæjarinn hafa séð rafvirkjann drekka lítinn bjór fyrir hádegismat, og svo þrjú rauðvínsglös og eitt skot af brandí með matnum. Nokkur sambærileg atvik voru tiltekin í skýrslunni.

Dómstóll í Murcia taldi uppsögnina ólögmæta. Hvergi hafi komið fram í skýrslu einkaspæjarans að rafvirkinn hagað sér klaufalega eða í raun virst undir áhrifum. Hann hafi nánast alltaf drukkið áfengi á matartíma í vinnunni, og þá oft ásamt öðrum vinnufélögum, og það eitt og sér teldist ekki athugavert.

Hafa bæri í huga að þetta hafi verið í miðjum júlímánuði á Spáni, þar sem hitinn setti gjarnan strik í reikninginn. Þá væri heldur ekki sýnt fram á að hann hafi ekið fyrirtækjabílnum yfir leyfilegum áfengismörkum.

Eins og fyrr segir ber fyrirtækinu að setja rafvirkjann aftur í sitt gamla starf – eða greiða honum rúmar sjö milljónir króna, að því er fram kemur hjá Guardian.

Heimild: Visir.is