Home Fréttir Í fréttum Ríkustu Ís­lendingarnir: Jón Helgi í Byko

Ríkustu Ís­lendingarnir: Jón Helgi í Byko

445
0
Jón Helgi Guðmundsson er stærsti eigandi eignarhaldsfélagsins Norvik ásamt fjölskyldu sinni. Ljósmynd: Haraldur Jónasson

Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarformaður Norvik, sem er gjarnan kenndur við Byko, hefur lengi verið þekktur í íslensku viðskiptalífi.

<>

Jón Helgi Guðmundsson, stjórnarformaður Norvik, sem gjarnan er kenndur við Byko, hefur lengi verið þekktur í íslensku viðskiptalífi. Hann er meðal ríkustu Íslendinganna samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar.

Hann er stærsti eigandi eignarhaldsfélagsins Norvik ásamt fjölskyldu sinni. Jón Helgi á nú persónulega ríflega fjórðungshlut í Norvik en börn hans fara með meirihluta í félaginu.

Norvik á og rekur fimm dótturfélög á byggingavörumarkaði, í fasteignarekstri og timburvinnslu og á auk þess hlut í fasteignafélaginu Kaldalóni.

Meðal eigna Norvik eru fasteignafélagið Smáragarður, 59% hlutur í Bergs Timber sem skráð er í sænsku kauphöllinni og byggingavöruverslunin Byko.

Heimild: VB.is