Vegagerðin býður hér með út vegheflun á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Vík, vestur, fyrir árin 2023 og 2024.
Helstu magntölur á ári eru áætlaðar:
- Vegheflun: 495 km
Verkinu skal að fullu lokið 31. desember 2024. Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign