Vegagerðin býður hér með út vegheflun og snjómokstur á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Vík, austur, fyrir árin 2023 til 2025.
Helstu magntölur á ári eru áætlaðar:
- Vegheflun: 495 km
- Snjómokstur með veghefli: 200 km
Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2025. Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign