F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Grassláttur á stofnanalóðum í Reykjavík 2023-2024, EES útboð nr. 15790
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða grasslátt á stofnanalóðum, þ.e. skóla- og leikskólalóðum, í vestur- og austurhluta Reykjavíkur. Verkið nær til tveggja ára, þ.e. 2023 og 2024. Verktími er frá 19. maí til 20. ágúst 2023 og 2024.
Helstu magntölur:
Útboðssvæði vestur: 103.688 m2
Útboðssvæði austur: 168.043 m2.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00, föstudaginn 24. mars 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 25. apríl 2023.