Home Fréttir Í fréttum 29.03.2023 Klettaskóli – færanlegar kennslustofur

29.03.2023 Klettaskóli – færanlegar kennslustofur

301
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Klettaskóli – færanlegar kennslustofur, útboð nr. 15775.

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Reykjavíkurborg býður út smíði og uppsetningu á fjórum kennslustofum í Klettaskóla ásamt tengibyggingu. Stofurnar skulu vera byggðar úr timbri á stálbitum. Hverja stofueiningu á að vera hægt að flytja í heilu lagi og setja niður á notkunarstað.

Væntanlegur verktaki mun smíða kennslustofurnar með öllum húskerfum og innréttingum og afhenda fullbúnar á lóð við skólann að Suðurhlíð 9, 105 Reykjavík.

Nánari lýsingu og útskýringar er að finna í útboðsgögnum á vef Reykjavíkurborgar. Stofurnar skal smíða á vinnusvæði væntanlegs verktaka og fluttar er smíði er lokið.

Stærðir: Fjórar stofur auk tengibyggingar, heildarstærð alls um 433 m2.

Lok framkvæmdatíma: 1.nóvember 2023.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 09:00 þann 14. mars 2023.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 29. mars 2023.