Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir, blettanir með klæðingu, á Vestursvæði og Norðursvæði árið 2023,
Helstu magntölur eru:
Blettun á Vestursvæði með klæðingu: 180.000 m2
Blettun á Norðursvæði með klæðingu: 150.000 m2
Flutningur steinefna: 100.000 m3 x km
Flutningur bindiefna: 35.000 m3 x km
Verki skal að fullu lokið 1. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 13. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign