
Verksamningur Selásbygginga ehf við Bláskógabyggð vegna byggingar skrifstofuhúsnæðis fyrir Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita á Laugarvatni hefur verið undirritaður.
Tilboð Selásbygginga í verkið nam 183,9 milljónum króna og eru verklok áætluð 1. mars á næsta ári.
Undir UTU heyrir skipulags- og byggingarfulltrúaembætti sem sveitarfélögin Bláskógabyggð, Flóahreppur, Ásahreppur, Hrunamannahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur standa saman að.
Húsið verður reist við Hverabraut á lóð númer sex, en á því svæði er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði, auk þess sem heimilt er að hafa íbúðir á efri hæðum.
Heimild: Sunnlenska.is