Home Fréttir Í fréttum Verksamningur um endurnýjun vesturálmu Varmárskóla undirritaður

Verksamningur um endurnýjun vesturálmu Varmárskóla undirritaður

389
0
Myndir: Mosfellsbær

Mosfellsbær og Afltak ehf. hafa undirritað verksamning um framkvæmdir við vesturálmu Varmárskóla.

Framkvæmdirnar fela í sér endurnýjun rýma í vesturálmu, þar sem meðal annars verða heimilisfræðistofa, tónlistarstofa, sérkennslustofa og ein almenn kennslustofa endurbyggðar frá grunni ásamt göngum og stoðrýmum. Með verkefninu er stefnt að því að bæta vinnu- og námsaðstæður nemenda og starfsfólks, sérstaklega hvað aðbúnað varðar.

Frá vinstri: Kristrún Huang Ólafsdóttir JTV, Þóra Margrét Hjaltested bæjarstjóri, Kristín Ýr Pálmarsdóttir Afltak, Jónas Bjarni Árnason Afltak, Hafsteinn Helgi Grétarsson Afltak, Guðbjartur Geir Grétarsson Afltak, Illugi Þór Gunnarsson verkefnastjóri hjá Mosfellsbæ og Magnús Sigurðsson rekstrarstjóri eignasjóðs Mosfellsbæjar.

Gert er ráð fyrir að rýmið verði tilbúið til notkunar í upphafi næsta skólaárs.

Verktaki framkvæmdanna er Afltak ehf. Byggingarstjórn og eftirlit er í höndum JTV ehf. Hönnun verksins er unnin af Gláma Kím ehf. en Pascal ehf. sér um lagna- og loftræsihönnun. Raflagna- og hljóðvistarhönnun er á ábyrgð Lota ehf. og burðarþolshönnun er í höndum Exanordic ehf.

Heimild: Mosfellsbær