Jarðvegsframkvæmdir vegna nýs tengivirkis Landsnets á Hryggstekk í Skriðdal hefjast í sumar. Nýtt tengivirki á að vera komið í gagnið á næsta ári, heldur fyrr en áætlað hefur verið.
Framkvæmdin á Hryggstekk felur það í sér að byggt verður nýtt 220 kV tengivirki á Hryggstekk sem síðan tengist Fljótsdalslínum 3 og 4, 220 kV línum sem til þessa hafa aðeins verið nýttar til að flytja rafmagn á milli Fljótsdalsstöðvar og álversins á Reyðarfirði.
Útboði vegna jarðvinnu er lokið og samningar á lokametrunum. Jarðvinnan hefst síðan í vor og á að vera lokið í nóvember. Fljótsdalslína 4 verður færð tímabundið í sumar.
Húsasmíði boðin út
Útboð á byggingu tveggja nýrra bygginga, spennahúss og rofahúss, stendur yfir og rennur tilboðsfrestur út í byrjun maí. Áætlað er að byrjað verði að byggja húsin í sumar og þau verði tilbúin í september 2027.
Á næsta ári verður rafbúnaður einnig settur upp því spennusetja á nýja tengivirkið áður en árið 2028 gengur í garð. Við kynningu á framkvæmdinni fyrir ári var ekki búist við að tengivirkið yrði tilbúið fyrr en árið 2028, en vilji var til að flýta því vegna þeirra hindrana sem það ryður úr vegi.
Bætir flæði raforku um Austurland
Með nýja tengivirkinu er hindrunum í raforkukerfinu á milli Austurlands og Norðurlands eytt. Við það eykst orkuflutningur til Austurlands um 50MW en heildarnotkun svæðisins í dag er um 130 MW. Þá verður loks hægt að nýta til fulls aðrar nýlegar framkvæmdir, svo sem 132 kV hringtengingu milli tengivirkja við Egilsstaði, Eskifjörð, Reyðarfjörð og Hryggstekk.
Breytingarnar á Hryggstekk er eina aðgerðin á Austurlandi sem er inni á framkvæmdaáætlun 2026-28 í nýrri kerfisáætlun Landsnets sem staðfest var fyrr í mánuðinum.
Þrjú verkefni eru á langtímaáætlun fyrir árin 2029-31: Endurnýjun 66 kV tengivirkis á Seyðisfirði og 132 kV tengivirkis á Hryggstekk auk tvítengingar Fáskrúðsfjarðar. Á langtímaáætlun 2032-34 er endurnýjun 66 kV tengivirkis á Vopnafirði.
Heimild: Austurfrett.is












