Home Fréttir Í fréttum Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum

Ætla að byggja 1.200-1.400 íbúðir á ríkislóðum

55
0
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, kynntu áætlunina í dag. mbl.is/Karítas

Byggðar verða 1.200-1.400 nýjar íbúðir í Reykjavík á næstu árum á lóðum ríkisins og í húsnæði í eigu ríkisins sem breytt verður í íbúðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu en Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, kynntu áætlunina í dag.

20-30% íbúðanna verða hagkvæmar íbúðir, það er almennar íbúðir og íbúðir sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, aðrar leiguíbúðir, til dæmis stúdentaíbúðir, leiguíbúðir Félagsbústaða og íbúðir fyrir eldra fólk, og búseturéttaríbúðir.

Íbúðum getur fjölgað enn frekar

Íbúðirnar verða á eftirfarandi stöðum:

  • Borgartún: 220 íbúðir.
  • Grensásvegur: 90 íbúðir.
  • Efri hluta Laugavegar: 100 íbúðir.
  • Laugarnesvegur: 300 íbúðir.
  • Seljavegur: 90 íbúðir.
  • Á landi austan Korpúlfsstaða, á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar: Á bilinu 400-600 íbúðir.

Verkefnin eru mislangt á veg komin og íbúðum getur fjölgað enn frekar eftir því sem líður á skipulagsferlið. Þau verða auglýst á næstunni og gefst þá uppbyggingaraðilum kostur á að sækja um að taka þátt í þeim.

Í framhaldinu verða lóðirnar og eignirnar seldar til þeirra sem verða fyrir valinu og fara verkefnin þá áfram í frekara skipulagsferli.

Þá verður unnið að uppbyggingu á ríkislóðum og ríkiseignum í fleiri sveitarfélögum.

Frá kynningunni í dag. mbl.is/Karítas

Samstarfið muni skila öflugri húsnæðismarkaði

Nýju íbúðirnar á ríkisreitunum eru kjölfestan í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar. Haft er eftir félags- og húsnæðismálaráðherra í tilkynningunni að nauðsynlegt sé að bjóða fram þessar lóðir vegna mikillar þarfar á meiri uppbyggingu. Verið sé að jafna leikinn og styðja við leigjendur og fyrstu kaupendur.

Haft er eftir fjármála- og efnahagsráðherra að mikilvægt sé að þróunarreitir ríkisins séu nýttir til uppbyggingar og að kyrrstaða hafi valdið því að uppbygging hafi ekki verið jafn hröð og ákjósanlegt hafi verið. Með samningnum sé verið að fjölga íbúðum í borginni með umbreytingu á eldra húsnæði í eigu ríkisins og betri nýtingu lóða.

Þá er haft eftir borgarstjóra að samningurinn sé til marks um mikilvægi samvinnu ríkisins og borgarinnar í húsnæðismálum. Samstarfið muni skila fleiri heimilum, sterkara samfélagi og öflugri húsnæðismarkaði.

Heimild: Mbl.is