Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samhljóða samþykkt að ganga að samningi við Arctic Hydro varðandi rannsóknar- og nýtingarleyfi vegna Þormóðsstaðavirkjunar.
Í tilkynningu sveitarfélagsins segir að sveitarstjórn telji samninginn hagfelldan fyrir sveitarfélagið og í samræmi við þá framtíðarsýn sem höfð var að leiðarljósi við kaup sveitarfélagsins á landinu að Þormóðsstöðum.
Skapar framtíðartekjur
Einnig kemur fram að ef af virkjunarframkvæmdum verður skapi samningurinn framtíðartekjur fyrir sveitarfélagið, styrki raforkuöryggi á svæðinu og eykur forsendur fyrir uppbyggingu í samfélaginu með auknu framboði af orku.
Heimild:Mbl.is












