Home Fréttir Í fréttum 29.03.2023 Keflavíkurflugvöllur New Terminal Apron (NTA23)

29.03.2023 Keflavíkurflugvöllur New Terminal Apron (NTA23)

285
0
Mynd: Isavia

Isavia ohf. óskar eftir tilboði í verkefni sem snýr að breytingum á flughlaði á gróflega á því svæði þar sem núverandi stæði 2 er staðsett og austan af því.

<>

Þar munu koma ný flugvélastæði en tengibyggingar vegna þeirra stæða eru boðnar út í útboði U23002 Mars 1 og Mars 2.

Verið er að endurbyggja svæðið austan og sunnan við núverandi Norðurbyggingu með stækkun flugstöðvar SLN18 East Wing og SLN 21 meðal annars.

Þessar framkvæmdir eru samkvæmt aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar og eru mikilvægur þáttur í stækkunaráætlun flugvallarins. Með þessi tvö verkefni í huga þá þarfnast flughlaðsvæðið sem þjónustar flugstöðinni á þessum stað mikillar uppbyggingar.

Útboðsgögn afhent: 27.02.2023 kl. 18:30
Skilafrestur 29.03.2023 kl. 10:00
Opnun tilboða: 29.03.2023 kl. 10:00

Allar nánari upplýsingar eru að finna á útboðsvef Isavia