Home Fréttir Í fréttum 07.03.2023 Hringvegur (1-a2), Aurá – Krossá, styrkingar og endurbætur

07.03.2023 Hringvegur (1-a2), Aurá – Krossá, styrkingar og endurbætur

259
0

Vegagerðin býður hér með út endurmótun og styrkingu á 1,4 km kafla á Hringvegi (1-a2), frá Aurá að Krossá

<>

Útboðið nefnist: Hringvegur (1-a2), Aurá – Krossá, styrkingar og endurbætur

Verkið felst að stærstum hluta til í fræsingu núverandi vegar, lítilsháttar breikkun, jöfnun og útlögn klæðingar.

– Skeringar 2.100 m3

– Lögn stálræsa 24 m

– Fyllingar og fláafleygar 1.870 m3

– Burðarlag 0/22 2.500 m3

– Tvöföld klæðing 11.070 m2

– Gróffræsun 9.000 m2

– Frágangur fláa og vegsvæðis 10.000 m2

Verkinu skal að fullu og öllu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 21. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.