Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirfarandi eignum, um er að ræða aðskilin útboð:
- Oddeyrarskóli
- Eiðsvallagata 34
- Smárahlíð 1 og 3
- Glerárlaug
- Slökkvistöð Akureyrar
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með þriðjudeginum 21. febrúar 2023.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 10. mars 2023 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.