Home Fréttir Í fréttum Mikill meiri­hluti íbúa vildi 300 milljóna fram­kvæmdina

Mikill meiri­hluti íbúa vildi 300 milljóna fram­kvæmdina

128
0
Mikill meirihluti þeirra íbúa sem sóttu húsfund í gærkvöldi samþykkti at framkvæmdum yrði fram haldið. VÍSIR/VILHELM

Mjög mikill meirihluti íbúa í Asparfelli 2 til 12 greiddi atkvæði með því á húsfundi í gær að 300 milljóna króna framkvæmdir við húsið verði kláraðar. Sonur íbúðareiganda hélt því fram í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær að mikil óánægja væri vegna framkvæmdanna og að ráðist hafi verið í þær eftir ólöglegan húsfund.

<>

Þetta segir í tilkynningu frá Daníel Árnasyni, framkvæmdastjóra Eignaumsjónar. Eignaumsjón og verkfræðistofan Verksýn voru gagnrýnd af íbúa hússins vegna málsins í gær. Fram kemur í tilkynningunni að stjórn húsfélagsins hafi fengið mikinn stuðning og þakklæti fyrir sín störf.

„[Hússtjórnin] hefur setið undir gagnrýni nokkurra eigenda, verið hótað persónulegum ábyrgðum og enn fremur hafa fyrirtæki sem aðstoð húsfélagið við verkefnið verið borin þungum sökum,“ segir í tilkynningunni.

„Á fundinum kom því fram mikil samstaða meðal eigenda í húsinu um viðhaldsframkvæmdir sem voru fyllilega tímabærar. Þetta mál sýnir að þegar fjallað er um mál af þessu tagi verður að kalla eftir sjónarmiðum áður en einhliða málflutningur er borinn á borð.“

Málið komst í fréttir í gær eftir að Ólafur Ragnar Hilmarsson, hvers móðir býr í Asparfelli, greindi frá umfangi framkvæmdanna í Bítinu á Bylgjunni. Lýsti hann því þar að ráðist hafi verið í að skipta út 272 gluggum í húsinu þó að aðeins þyrfti að skipta um 92. Framkvæmdin væri vitanlega dýr, hún kostar tæpar 300 milljónir, en með því að skipta bara um þá 92 glugga sem voru greinilega ónýtir þegar mat var gert á húsinu væri hægt að spara hátt í 100 milljónum króna.

Ólafur sakaði jafnframt þá aðila sem komu að útboðinu – Verksýn, sem gerði ástandsmat á húsinu og hefur annast útboð og eftirlit með framkvæmdinni, og Eignaumsjón, rekstrarþjónustu húsfélagsins – um græsku. Báðir aðilar neituðu þeim ásökunum staðfastlega í viðtali við Vísi í gær.

Hann lýsti því jafnfamt að fundurinn, sem verkið var smaþykkt á, hafi verið ólöglegur. 51 eigandi í húsinu, þar sem eru 192 íbúðir, hafi mætt á fundinn og 33 samþykkt verkið. Hann og fleiri óánægðir eigendur kærðu málið til kærunefndar húsamála, sem úrskurðaði svo að 2/3 af fundarmönnum hefði þurt til að samþykkja framkvæmdina.

Í gær var því haldinn húsfundur sem var vel sóttur. Fulltrúar fyrir 145 eignir mættu á fundinn og aðeins tíu greiddu atkvæði gegn því að framkvæmdinni yrði fram haldið. 134 Greiddu atkvæði með áframhaldi framkvæmdanna.

Heimild: Visir.is