Home Fréttir Í fréttum Ætla að byggja upp frakt­flugs­mið­stöð í Kefla­vík

Ætla að byggja upp frakt­flugs­mið­stöð í Kefla­vík

221
0
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson

Icelandair stefnir að því að byggja upp miðstöð fyrir fraktflug á Keflavíkurflugvelli.

<>

Icelandair stefnir að því að byggja upp miðstöð fyrir fraktflug á Keflavíkurflugvelli sambærilega þeirri sem félagið hefur starfrækt í farþegaflugi um áratugaskeið.

Þetta kom fram í máli Boga Nils Bogasonar forstjóra Icelandair Group á uppgjörsfundi félagsins í vikunni.

Í uppgjöri félagsins er bent á að Icelandair hafi bætt við Boeing 767- 300 breiðþotu í flugflota sinn í desember ætlaða undir fraktflutninga. Önnur slík breiðþota bætist við í flugflota Icelandair í apríl.

Þá hyggst félagið stækka vöruhús sitt á Keflavíkurflugvelli til að mæta auknum umsvifum í fraktflutningum.

Leggja á áherslu á að nýta breiðþoturnar í fraktflugi til Liege í Belgíu, Los Angeles, New York og Chicago í Bandaríkjunum.

Bogi sagði að með rými í farþegaflugvélum sem nýtt væri undir frakt væri Icelandair með afar sterkt leiðakerfi fyrir fraktflutninga. Þar væru því tækifæri til arðbærs vaxtar.

Heimild: Vb.is