Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf. óska eftir tilboðum í verkið „Múlaland 12, Ísafirði, viðgerðir utanhúss“. Um er að ræða múrviðgerðir á einum gafli, málun veggja og glugga auk minni verkþátta.
Helstu stærðir eru:
Hreinsun steyptra flata: 362 m²
Endurmálun veggja 863 m²
Endurmálun gluggakanta 325 m
Verkið skal vera að fullu lokið í 15. september 2015.
Útboðsgögn verða til sýnis hjá Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 9. apríl 2015. Tilboðin verða opnuð hjá Ísafjarðarbæ í Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð, 28. apríl 2015 klukkan 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.