Home Fréttir Í fréttum 09.02.2023 Hafnarfjarðarbær, endurbætur á þaki Setbergsskóla

09.02.2023 Hafnarfjarðarbær, endurbætur á þaki Setbergsskóla

341
0
Mynd: Setbergsskóli

Hafnarfjarðabær, Strandgötu 6, 220 Hafnarfirði, kt.: 590169-7579, auglýsir eftir tilboðum í verkið :

<>

Viðhald húsnæðis Hafnarfjarðarbæjar 2023, endurbætur á þaki Setbergsskóla.

Um er að ræða breytta útfærslu á þaki, þ.e. fjarlægja alla þakglugga, loka loftrás, setja gufuopið vatnsvarnarlag beint á sperrur og tví-lekta þakið áður en bárujárnsklæðningu er komið á.

Útboðið er almennt opið útboð.

Helstu stærðir hússins:

  • Verktaki á að endurnýja hluta þaksins eða um 1.755 m2 af 3.814 m2.

Helstu magntölur:

  • Rif á þakklæðningu 1.590 m2.
  • Nýjar þaksperrur 250 lm.
  • Ný þakeinangrun 1.460 m².
  • Nýtt þakjárn 1.755 m2.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum, sem eru rafræn og verða aðgengileg á www.utbodsgatt.is/hafnarfjordur/endurbaetur-a-thaki-setbergsskola-2023, mánudaginn 23. janúar 2023.

Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins, eigi síðar en 09. febrúar 2023, kl. 11:00, þar sem tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Sjá frekar.