Home Fréttir Í fréttum 15.02.2023 Bryggjuhverfi vestur – Efnisöflun úr sjó, landfylling

15.02.2023 Bryggjuhverfi vestur – Efnisöflun úr sjó, landfylling

306
0
MYND/REYKJAVÍKURBORG

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Bryggjuhverfi vestur – Efnisöflun úr sjó, landfylling, útboð nr. 15733

Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í efnisöflun úr sjó og dæla á land við Sævarhöfða. Fyllingarefni verður notað í farghauga og í landfyllingu. Annar verktaki á vegum verkkaupa mun útbúa pitt (móttökusvæði/þró) á landi til að taka á móti efni sem dælt er á land.

Verktaki skal vera innan handar við gerð (hönnun og útfærslu) á móttökusvæði á landi. Efni í landfyllingar og farghauga skal koma sjóleiðis. Ekki er leyfilegt að koma með það landleiðis. Aðkoma að svæðinu sjóleiðis er eftir siglingarrennu. Helstu magntölur eru: Efni í landfyllingu og farghauga: 100.000 m³.

Áætluð verklok eru 31. desember 2023

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 25. janúar  2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 15. febrúar 2023.