Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt ákvörðun byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarkaupstaðar um samþykki byggingaráforma að Ásvöllum 1. Til stóð að reisa knatthús Hauka á lóðinni. Oddviti Vinstri grænna í Hafnarfirði segir málið til marks um lélega stjórnsýsluhætti í bænum.
Nefndin fjallaði í dag um kærur eigenda lóða í nágrenni Ásvalla 1 og Ásvalla 3-5. Eigendurnir kærðu öll áform og kæranlegar ákvarðanir sem tengist byggingu knatthúss, bílastæða, fjögurra æfingavalla og tengdra framkvæmda upp við mörk friðlands Ástjarnar í Hafnarfirði. Þá var gerð krafa um ógildingu framkvæmda- og byggingarleyfa á lóðinni Ásvellir 3–5. Þar stendur til að reisa íbúðarhús.
Tekist á um aðild að málinu
Í úrskurði nefndarinnar segir að eigendur lóðanna í kringum Ásvelli hafi ekki haft lögvarða hagsmuni af því að ákvarðanir sem varða Ásvelli 3-5 yrðu felldar úr gildi og því var kæru vegna þessa vísað frá nefndinni.
Á hinn bóginn taldi nefndin að ekki væri unnt að útiloka grenndaráhrif gagnvart sumum kærenda vegna byggingar knatthúss að Ásvöllum 1 enda sé þar um að ræða stórt mannvirki sem verði áberandi í byggðinni, en áætlað sé að það verði um 12.000 fermetrar að flatarmáli og 23,8 metrar á hæð.
Nefndin mat það svo að grenndaráhrif útsýnisbreytinga vegna knatthússins séu ekki með þeim hætti að þau geti varðað hagsmuni eigenda að Erluási 1 og Blikaási 6 umfram aðra og var kröfu þeirra því vísað frá nefndinni.
Á hinn bóginn væri ekki unnt að útiloka að grenndaráhrif hins umdeilda knatthúss verði slík að varðað geti í verulegu hagsmuni eigenda að Blikaási 4 og 9 og var þeim því játuð kæruaðild í málinu.
Framkvæmdir þegar hafnar
Í úrskurðinum segir að nefndinni sé kunnugt um að framkvæmdir séu hafnar við jarðvinnu að Ásvöllum 1 vegna knatthússins en hafi ekki fengið upplýsingar frá Hafnarfjarðarkaupstað um hvort gefið hafi verið út leyfi til þeirra framkvæmda sérstaklega.
Þá segir að Ástjörn og svæði í kringum hana njóti friðlýsingar og því beri að leita umsagnar Umhverfisstofnunar áður en leyfi er veitt fyrir starfsemi eða framkvæmdum, sem leyfisskyldar séu samkvæmt öðrum lögum.
Með vísan til álits Skipulagsnefndar um fyrirhugaðar framkvæmdir, sér í lagi hvað varðar áhrif þeirra á fuglalíf á svæðinu, taldi nefndin nægileg rök framkomin til að álíta að framkvæmdin geti haft áhrif á verndargildi hins friðlýsta svæðis við Ástjörn þannig að skylt sé að taka tillit til hennar og um leið leita lögskyldrar umsagnar Umhverfisstofnunar áður en leyfi væri veitt samkvæmt lögum um náttúruvernd.
Leituðu umsagnarinnar of seint
Í úrskurði nefndarinnar segir að fyrir hana hafi verið lögð samskipti milli Hafnarfjarðarbæjar og Umhverfisstofnunar. Af þeim yrði ráðið að þann 10. október árið 2022 hafi Umhverfisstofnun vakið athygli bæjaryfirvalda á skyldu til þess að afla umsagnar um hina kærðu framkvæmd áður en bæði framkvæmda- og byggingarleyfi væru veitt fyrir henni.
Af hálfu bæjarins hafi verið bent á fyrri aðkomu stofnunarinnar, það er við matsferli framkvæmdar sem og að grein yrði gerð, við ákvörðun um leyfisveitingar, fyrir afstöðu bæjarins gagnvart áliti Skipulagsstofnunar og umhverfismatsskýrslu. Þetta hafi leitt þetta til frekari samskipta og Hafnarfjarðarkaupstaður hafi óskað eftir umsögn Umhverfisstofnunar þann 5. desember árið 2022.
„Fyrir liggur að umsagnar Umhverfisstofnunar skv. 54. gr. laga um náttúruvernd var ekki leitað fyrr en 5. desember 2022, en hin kærða ákvörðun um samþykki byggingaráforma að Ásvöllum 1 er frá 23. nóvember s.á. Verður að telja þetta verulegan annmarka við meðferð málsins,“ segir í úrskurðinum.
Þá segir að réttaráhrif slíks annmarka eftir atvikum jafnað til þess að lögbundinnar umsagnar hafi ekki verið aflað, enda hafi hún þá engin réttaráhrif haft á úrlausn máls.
Með vísan til framangreinds taldi nefndin að ákvörðun um samþykki byggingaráforma knatthúss að Ásvöllum 1 hafi verið haldin slíkum annmörkum að fella verði hana úr gildi.
„Fyrir neðan allar hellur“
Davíð Arnar Stefánsson, sem leiddi lista Vinstri grænna í Hafnarfirði í síðustu sveitarstjórnarkosningum, segir úrskurð nefndarinnar til marks um lélega stjórnsýsluhætti í Hafnarfirði. Hann hefur lengi gagnrýnt fyrirhugaðar framkvæmdir við Ástjörn.
„Þetta er fyrir neðan allar hellur, ekki síst fyrir þær sakir að framkvæmdir eru þegar hafnar áður, áður en viðeigandi ferli er lokið, sem sagt kærufrestur, sem er auðvitað óboðlegt fyrir svo stóra framkvæmd og svo nærri mikilvægu náttúruverndarsvæði,“ segir hann í samtali við Vísi.
Heimild: Visir.is