Fasteignafélag Árborgar slf óskar eftir tilboðum í:
„Jötunheimar viðbygging – jarðvinna“
Verkið felur í sér að grafa fyrir viðbyggingu við leikskólann Jötunheima að Norðurhólum 3 á Selfossi, fylla upp undir undirstöður hússins og setja upp girðingar utan um framkvæmda-svæðið. Einnig er hluti af verkinu að grafa og fylla í lóð upp að ákveðinni hæð.
Helstu áætlaðar magntölur eru:
Losun klappar 50 m³
Gröftur 3700 m³
Fylling fyrir undirstöður 4300 m³
Gröftur í lóð 900 m³
Fylling í lóð og þjöppun 3000 m³
Verkinu skal að fullu lokið 1. mars 2026.
Útboðsgögn verða afhent á útboðvef sem er aðgengilegur hér.
| Útboðsgögn afhent: | 17.11.2025 kl. 17:30 |
| Skilafrestur | 03.12.2025 kl. 14:00 |
| Opnun tilboða: | 03.12.2025 kl. 14:10 |
Tilboðum skal skila rafrænt í útboðskerfinu Ajour. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhending ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboðs er til kl. 14:00 miðvikudaginn 3. desember 2026.
Opnun tilboða verður framkvæmd með rafrænum hætti á útboðsvefnum eftir að skilafrestur tilboða er liðinn. Bjóðendum verður því ekki boðið að mæta á opnunarfund en í kjölfar opnunar tilboða verður bjóðendum sent opnunaryfirlit rafrænt.
Mannvirkja og umhverfissvið Árborgar












