Home Fréttir Í fréttum Myndir af nýjum stúdentaíbúðum á Hótel Sögu líta dagsins ljós

Myndir af nýjum stúdentaíbúðum á Hótel Sögu líta dagsins ljós

138
0
Búist er við því að 111 stúdentar flytji inn núna í mars. Myndin er samsett. FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA

Félagsstofnun stúdenta hefur nú birt fyrstu myndirnar af nýjum stúdentagörðum í húsnæðinu sem áður var Hótel Saga.

<>

Stúdentagarðarnir, sem nefndir hafa verið til heiðurs liðinnar tíðar munu einfaldlega bera nafnið „Saga“ og er búist við því að 111 stúdentar flytji þangað inn strax í marsmánuði.

Félagsstofnun stúdenta (FS) keypti undir lok árs 2021, 27 prósenta hlut í húsnæðinu á móti ríkinu á 4,9 milljarða króna. Koma á 113 stúdentaíbúðum fyrir á fjórðu til sjöundu hæð í norðurálmu hótelsins gamla. Þá óskaði FS einnig eftir því að fá að hefja veitingarekstur á fyrstu hæð hússins.

Þá verður hótelið einnig nýtt sem húsnæði undir kennslu fyrir menntavísindasvið en sviðið hefur verið staðsett í Stakkahlíð og þá ansi aftengt miðju háskólasvæðisins.

 

Heimild: Visir.is

Myndir af íbúð á nýju stúdentagörðunum má sjá hér að neðan. 

FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA
FACEBOOK/FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA