Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu sjóvarna við Ólafsbraut og Ennisbraut í Ólafsvík og á Hellnum, heildarlengd um 720 m.
Helstu magntölur:
Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 8.800 m3
Upptekt og endurröðun grjóts um 8.700 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginu 16. janúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 31. janúar 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.