Home Fréttir Í fréttum Síðasti bíllinn hefur ekið Lauga­veg milli Hlemms og Snorra­brautar

Síðasti bíllinn hefur ekið Lauga­veg milli Hlemms og Snorra­brautar

94
0
Starfsmenn borgarinnar hafa sumir fengið spurningar um hvort heitir pottar verði á svæðinu. Það stendur ekki til. VÍSIR/VILHELM

Framkvæmdir standa nú yfir á Laugavegi á milli Hlemmtorgs og Snorrabrautar þar sem til stendur að breyta miðju götunnar með gróðri, setsvæðum, hjólastæði og óformlegum leikrýmum. Síðasti bíllinn hefur því rúntað á umræddum kafla.

<>

Á síðustu vikum hafa vegfarendur margir tekið eftir vinnuvélum á Laugavegi, milli Rauðarárstígs og Snorrabrautar, en samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg er áætlað að framkvæmdum ljúki í sumar.

Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður segir að framkvæmdirnar á svæðinu hafi í raun gengið mun betur en fyrirfram var búist við. „Það er reyndar allt stopp núna vegna snjóþyngsla og frosts en þegar þiðnar þá fara framkvæmdir þarna aftur á fullt. Þetta ætti að klárast í sumar.“

Áætlað er að framkvæmdum á Laugavegi, milli Hlemms og Rauðarárstígs ljúki í sumar.
REYKJAVÍKURBORG

Stálstrúktúr flækist um svæðið
Edda segir að á kaflanum verði sérstakur stálstrúktúr einkennandi og mun hann flækjast þar um, fara upp og niður.

„Við höfum fengið ýmsar spurningar frá fólki á síðustu dögum vegna þess sem við blasir núna. Fólk spyr til dæmis hvort það eigi að vera heitir pottar þarna og ýmislegt fleira. En þarna er verið að leggja grunninn að svokölluðum blágrænum ofanvatnslausnum sem ætlað er að létta á veitukerfi borgarinnar. Regnvatnið mun nýtast í gróðurbeðunum og þannig minnka álag á veitukerfið á svæðinu. Þannig nýtist regnvatnið og er á allan hátt umhverfisvænna.“

Framkvæmdir við Hlemm.
VÍSIR/VILHELM

Edda segir að þegar framkvæmdir á umræddum kafla klárist muni framkvæmdir við Hlemm halda áfram á næstu misserum. „Vonandi verður hægt að ráðast í framkvæmdir á sjálfu Hlemmtorgi árið 2024 en framkvæmdum mun fyrst endanlega ljúka þegar Borgarlínan rennur í gegnum svæðið. Við hlökkum til þess.“

Sérstakur stálstrúktur mun einkenna svæðið eftir að framkvæmdum lýkur.
REYKJAVÍKURBORG

Hlemmur er unglingurinn, Lækjartorg amman
Edda segir að það verði mjög spennandi að sjá svæðið þegar allt verður klárt.

„Við sjáum svolítið fyrir okkur að torgið sé að tala við Lækjartorg. Hlemmur er unglingurinn og Lækjartorg er amman.

Það stendur svo meðal annars til að koma upp sviði á Hlemmtorgi og gerum við ráð fyrir að Hlemmur geti til að mynda orðið upphafsstaður skrúðganga í miðbænum sem myndu svo enda á Lækjartorgi, Austurvelli, Ingólfstorgi eða hvað það nú er,“ segir Edda.

Hlemmtorg mun taka stakkaskiptum á næstu misserum.
REYKJAVÍKURBORG

Síðasta sumar kynnti Reykjavíkurborg þær miklu breytingar sem fyrirhugaðar eru við Hlemm en svæðið allt mun taka stakkaskiptum á næstu misserum. Liður í breytingunum er að ýmist takmarka eða loka fyrir bílaumferð á svæðinu.

Hemild: Visir.is