Home Fréttir Í fréttum 10.01.2023 Grindavík, sjóvarnir 2022

10.01.2023 Grindavík, sjóvarnir 2022

171
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir á fjórum stöðum stöðum í Grindavík; sunnan hafnar, við Litlubót, við golfvöll og vestan Gerðistanga.

<>

Helstu magntölur:
Heildarlengd sjóvarna um 995 m
Flokkað grjót og kjarni samtals um 9.185 m3
Upptekt og endurröðun um 2.142 m3

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum  21.  desember 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. janúar 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.