Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda 15 milljarða samningur um Keldna­land

15 milljarða samningur um Keldna­land

213
0
Bjarni Benediktsson og Davíð Þorláksson undirrituðu samkomulagið að viðstaddri stjórn Betri samgangna, fulltrúum sveitarfélaga og ráðuneytis og starfsmönnum Betri samgangna. Ljósmynd: BIG

Betri samgöngur ohf. taka við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt og annast þróun 116 hektara svæðisins.

<>

Ríkissjóður og Betri samgöngur ohf. hafa gengið frá samningi sín á milli um að félagið taki við landsvæðinu við Keldur og Keldnaholt ásamt þeim réttindum og skyldum sem því tengjast. Kaupverðið er 15 milljarðar króna, eins og samgöngusáttmálinn mælti fyrir um, og er það greitt með útgáfu nýrra hluta í Betri samgöngum, að því er kemur fram í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Landið er alls um 116 hektarar eða að svipaðri stærð og miðborg Reykjavíkur að flatarmáli. Í samgöngusáttmála ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá árinu 2019 var kveðið á um að allur ábati ríkisins af þróun og sölu Keldnalands, um 85,2 hektarar, rynni til uppbyggingar samgangna á höfuðborgarsvæðinu.

„Sú afmörkun var þó ekki endanleg og í kaupsamningnum sem nú hefur verið undirritaður er gert ráð fyrir að því til viðbótar verði landið sem tilheyrir Keldnaholti, alls 30,6 hektarar, einnig framlag ríkisins til verkefnisins.“

Þróa nýtt framtíðarhverfi
Í tilkynningunni segir að Betri samgöngur, félag í eigu ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, munu annast það verkefni, í samvinnu við skipulagsyfirvöld, að hámarka virði landsins og uppbyggingarmöguleika eins og kostur er með hagkvæmu skipulagi og nýtingarhlutfalli sem samræmist áformum um þéttingu byggðar á samgöngu- og þróunarás Borgarlínu.

„Um er að ræða einstæðan samning þar sem verðmætt land í eigu ríkisins verður nýtt til að standa undir uppbyggingu á mikilvægum innviðum […] Þá er markmiðið að á landinu rísi nýtt og vandað framtíðarhverfi þar sem áhersla verður lögð á vistvænar samgöngur.“

Verði ábati verkefnisins umfram 15 milljarða króna kaupverðið þá munu þeir fjármunir einnig renna til verkefnisins.

„Í samgöngusáttmálanum var ákveðið að flýta uppbyggingu framtíðarhverfis að Keldum sem og framkvæmdum við Borgarlínu sem fara á um hverfið endilangt. Þjónusta Borgarlínu er ein helsta forsenda þess að hægt sé að umbreyta Keldum og Keldnaholti í þétta og blandaða byggð með íbúðum, þjónustu og atvinnuhúsnæði.“

Jafnframt er tekið fram að áætlaður ferðatími með Borgarlínu milli Keldna og Lækjartorgs er um 20 mínútur.

Þróa deiliskipulag fyrstu reitanna næsta haust
Betri samgöngur hafa í samstarfi við skipulagsyfirvöld unnið að undirbúningi þróunar svæðisins síðan um mitt síðasta ár. Snemma á nýju ári verður farið í alþjóðlega samkeppni um þróunar- og uppbyggingaráætlun fyrir Keldur og Keldnaholt í samvinnu félagsins og Reykjavíkurborgar. Í framhaldinu verður unninn rammahluti Aðalskipulags Reykjavíkur, deiliskipulags- og uppbyggingaráætlanir á grunni verðlaunatillögu í samkeppninni.

Stefnt er að því að hægt verði að þróa deiliskipulag fyrir fyrstu uppbyggingarreitina á svæðinu haustið 2023.

Heimild: Vb.is