Home Fréttir Í fréttum 3,8 milljarða kaup hjá Kaldalóni

3,8 milljarða kaup hjá Kaldalóni

424
0
Jón Þór Gunnarsson er forstjóri Kaldalóns Ljósmynd: Eyþór Árnason

Kaldalón kaupir höfuðstöðvar ORF líftækni og Bioeffect í Kópavogi sem og húsnæði Rafals í Hafnarfirði.

<>

Fasteignafélagið Kaldalón tilkynnti í gærkvöldi um kaup á fasteignum og tveimur félögum. Heildarvirði fasteigna í viðskiptunum er 3.765 milljónir króna, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Kaupverð greiðist að fullu með reiðufé.

Eignirnar eru allar í langtímaleigu og leigutekjur þeirra nema 332 milljónum króna á ári. Áætlað er að rekstrarhagnaður (NOI) Kaldalóns aukist um 252 milljónir á ársgrundvelli eftir viðskiptin.

Kaupa húsnæði ORF líftækni og Rafals

Kaldalón hefur skrifað undir kaupsamning um kaup á öllu hlutafé Faðmlags ehf., sem er í eigu Kristjóns Sigurðsson, aðaeiganda Rafals, og fjölskyldu. Helsta eign Faðmlags eru fasteignir við Hringhellu 9 og 9A í Hafnarfirði, sem hýsa starfsemi Rafals og dótturfélaga.

Þá hefur dótturfélag Kaldalóns skrifað undir kaupsamning um kaup á fasteigninni að Víkurhvarfi 7 í Kópavogi, höfuðstöðvum ORF líftækni og Bioeffect.

Kaldalón hefur jafnframt gert samkomulag um kaup á öllu hlutafé Vesturhrauns ehf., sem er að stærstum hluta í eigu Gísla Jónssonar, Jóhanns Ásgeirs Baldurs og Bjargar Jónsdóttur. Samkomulagið er háð fyrirvörum, m.a. ástands- og áreiðanleikakönnun.

Helsta eign Vesturhrauns ehf. er fasteign við Vesturhraun 5 í Garðabæ auk byggingarréttar. Byggingarréttur við Vesturhraun 5 er metinn á 60 milljónir króna en helmingur þess greiðist við nýtingu byggingarréttar, þó eigi síðar en 31. desember 2024.

Afhending á öllu hlutafé í Faðmlagi ehf. og fasteign við Víkurhvarf 7 hefur farið fram. Áætlað er að frágangi viðskipta vegna kaupa á öllu hlutafé í Vesturhrauni ehf. ljúki á næstu vikum.

Heimild: Vb.is