Home Fréttir Í fréttum Kaupir Stál­smiðjuna-Fram­tak

Kaupir Stál­smiðjuna-Fram­tak

271
0
Úr húsnæði Stálsmiðjunnar-Framtaks í Garðabæ STÁLSMIÐJAN-FRAMTAK

Samkomulag hefur náðst um kaup Vélsmiðju Orms og Víglundar á Stálsmiðjunni-Framtak. Eru kaupin gerð með fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlits.

<>

Frá þessu segir í tilkynningu, en bæði fyrirtækin hafa annast viðgerðar- og viðhaldsþjónustu á skipum ásamt málmsmíði og þjónustu við stóriðju og iðnaðarfyrirtæki.

„Með kaupunum eru aðilar sannfærðir um að til verði sterkari eining sem gerir aðilum betur kleift að takast á við alþjóðlegan samkeppnismarkað í skipaviðgerðum ásamt því að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og hafi bolmagn til þess að takast á við stærri verkefni.

KPMG er ráðgjafi beggja aðila í viðskiptunum,“ segir í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is