Home Fréttir Í fréttum Fjallaböðin í Þjórsárdal verða að veruleika

Fjallaböðin í Þjórsárdal verða að veruleika

375
0
Mynd: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins, Haraldur Þór Jónsson sveitarstjóri Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Magnús Orri Marínarson Schram framkvæmdarstjóri Fjallabaðanna

Hér er á ferð metnaðarfull uppbygging í Þjórsárdal sem áætlað er að verði komin í gagnið árið 2025.

<>

Annars vegar er um að ræða Fjallaböðin; baðstað og 40 herbergja hótel, þar sem samspil náttúru og hönnunar á sér engan líkan en stór hluti byggingarinnar verður byggður ínni fjallið Rauðukamba.

Hins vegar er um að ræða Gestastofu Þjórsárdals sem mun rísa í mynni Þjórsárdals. Þar verður reist 2000 fermetra þjónustubygging sem mun hýsa upplýsingamiðstöð ferðamanna, metnaðarfullt sýningarhald, og veitingaþjónustu ásamt fleiri gistimöguleikum, í smáhýsum og á tjaldstæði.

Umhverfis- og sjálfbærnisjónarmið eru höfð að leiðarljósi við alla uppbyggingu. Allar byggingar verða BREEAM sjálfbærnivottaðar. Þannig er stefnt að lægra kolefnisspori en venja er til, vistvænum lausnum við byggingu og endurvinnslu á byggingarefni.

Stefnt verður að kolefnisjöfnuðum rekstri frá fyrsta degi. Þegar hefur félagið plantað 120.000 trjám í Þjórsárdal til að tryggja bindingu kolefnis stax við opnun.

Áætlaður kostnaður við uppbygginguna er á bilinu 6-8 milljarðar króna. Bakhjarlar verkefnisins eru Rauðukambar ehf en helsti eigandi þess eru Íslenskar heilsulindir ehf, dótturfélag Bláa Lónsins hf.

Heimild: Skeiða- og Gnúpverjahreppur