Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir við Laxárdalsveg hafnar

Framkvæmdir við Laxárdalsveg hafnar

183
0
Mynd sýnir frá framkvæmdum við Laxárdalsveg (59). Mynd: Bogi Kristinsson Magnusen

Verktakar Vörubílafélagsins Mjölnis hafa hafist handa við endurbyggingu Laxárdalsvegar (59) frá sýslumörkum að Innstrandarvegi.

<>

Alls er um 7,8 km kafla að ræða.

Samkvæmt áætlunum Vegagerðarinnar verður vegurinn að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á plan- og hæðarlegu.

Verður vegurinn aðlagaður að einbreiðri brú yfir Laxá sem ekki stendur til að endurnýja.

Laxárdalsvegur

Gert er ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið í október 2023.

Í tengslum við verkið hefur verktakinn tekið eldhús og matsal skólahússins á Borðeyri á leigu virka daga á meðan á verkinu stendur.

Gert er ráð fyrir að hlé verði gert á vinnunni yfir háveturinn meðan aðstæður til útivinnu eru ekki góðar.

Heimild: Trolli.is