Home Fréttir Í fréttum Mikill áhugi á Landsbankahúsinu á Akureyri

Mikill áhugi á Landsbankahúsinu á Akureyri

204
0
Mynd: Vikudagur.is

„Áhuginn er mikill og greinilegur, það hafa þó nokkrir haft samband, sent inn fyrirspurnir og óskað eftir frekari upplýsingum“ segir Arnar Birgisson framkvæmdastjóri fasteignasölunnar Eignavers um Landsbankahúsið við Strandgötu 1 á Akureyri sem auglýst var nýverið til sölu.

<>

Hús Landsbankans er um 2.300 fermetrar að stærð. Það er á fjórum hæðum auk kjallara með viðbygging á einni hæð til norðurs. „Þetta er fallegt og virðulegt hús á góðum stað,“ segir Arnar og bætir við að vissulega séu það fjársterkir aðilar sem sýnt hafa kaupum á byggingunni áhuga.

Bæjarbúar hafa líka mikinn áhuga og skoðanir á því hvaða starfsemi eigi að vera í húsinu, þetta er mikið í umræðunni, á kaffistofum og samfélagsmiðlum,“ segir Arnar.

Arnar segir ljóst að ekki verið starfandi banki í húsinu í framtíðinni. Landsbankinn og fleiri bankar hafi verið að selja húsnæði sín á landsbyggðinni, m.a. hefur Landsbankinn selt húseignir sínar á Selfossi og Ísafirði. Arionbanki á Akureyri og víða.

Heimild: Vikudagur.is