NJA-01: Byggingarvirki og jarðvinna
Landsnet, óskar eftir tilboðum í verk vegna Spennistöðvar á Njarðvíkurheiði.
Verkið felst í jarðvinnu, lagningu aðkomuvegar, byggingu, lóðarfrágangs og fullnaðarfrágangi á byggingu spennistöðvar á Njarðvíkurheiði. Spennistöðin samanstendur af tengivirkisbyggingu og spennabyggingu. Og er hún staðsett á Njarðvíkurheiði skammt sunnan við svokallað Patterson svæði, í Reykjanesbæ.
Eftirfarandi eru helstu verkþættir verksins:
a. Jarðvinna
b. Jarðskautslagnir
c. Uppsteypa og burðarvirki
d. Frágangur að utan og innan
e. Frárennsliskerfi
f. Smáspenna og lágspenna
Útboðsgögn afhent: | 03.10.2022 |
Skilafrestur | 10.11.2022 |
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is.