Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Brúargólfið steypt í nóvember

Brúargólfið steypt í nóvember

268
0
Brúarsmíðin er í fullum gangi. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Framkvæmdir við byggingu nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá, á mörkum Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, standa nú sem hæst.

<>

Um er að ræða tvíbreiða, staðsteypta, eftirspennta bitabrú í fjórum höfum. Nýja brúin er byggð við hlið einbreiðrar eldri brúar, sem fyrirhugað er að standi áfram og öðlist nýtt hlutverk sem reiðbrú yfir Stóru-Laxá.

Uppsteypu sökkla og stöpla brúarinnar lauk í júlí en fyrirhugað er að steypa brúargólfið sjálft í nóvember. Brúargólfið, sem er 145 m langt og verður það steypt í einu lagi. Í það munu fara u.þ.b. 1.212 rúmmetrar af steypu og mun steypuvinnan standa yfir í 36 klukkustundir samfleytt.

Ístak er verktaki verkefnisins en VSÓ Ráðgjöf sinnir framkvæmdaeftirliti og ráðgjöf. Samkvæmt upplýsingum frá VSÍ er áríðandi að vel sé staðið að skipulagi og undirbúningi steypuvinnunar á brúargólfinu, meðal annars þar sem hafa þarf nokkrum sinnum vaktaskipti á tímabilinu og þarf allt að ganga snurðulaust fyrir sig.

Heimild: Sunnlenska.is